Fréttir
Fyrirlestur í Hafnarhúsinu
On 13, Mar 2014 | No Comments | In Fróðleikur | By Dagný
Úrgangur“ er vaxandi vandamál, áhugi á vistvænum lausnum og enduvinnslu eykst með ári hverju, sú staðreynd að hráefnisskortur mun aukast á komandi árum leiðir hugann að því að nýta betur hráefni sem við köllum úrgang.
Í fyrirlestrinum mun Dagný Bjarnadóttir kynna verkefni sem byggja á endurnýtingu hráefnis sem áður hefur verið sett til hliðar sem úrgangur. Fyrilesturinn verður út frá myndefni af raunverulegum verkum og ferlinu sjálfu frá hugmyndafræði, hönnun og úrvinnslu.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröð Hönnunarmiðstöðvar í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands.
Grjót og gler fær umfjöllun í Morgunblaðinu
On 23, Mar 2012 | No Comments | In Umfjöllun | By Dagný
Í þessu verkefni er kynnt til sögunnar nýtt yfirborðsefni í stéttar, innkeyrslur og garða. Efnið sem um ræðir er unnið úr íslensku grjóti og muldu endurunnu gleri. Það er Dagný Bjarnadóttir sem fer fyrir verkefninu.











