Image Image Image Image Image
Scroll to Top

To Top

Umfjöllun

Design Diplomacy á Hönnunarmars

On 31, Mar 2019 | No Comments | In Fréttir, Umfjöllun | By Dagný

Dagný Bjarnadóttir tók þátt í viðburði HönnunarMars Design Diplomacy x Noregur sem haldinn var í Norska sendiherrabústaðnum. Þetta var þriðja árið í röð sem sendiherrar buðu hönnuðum frá sínum heimalöndum að taka þátt í opnu samtali við íslenska kollega á HönnunarMars og gestum boðið til að hitta hönnuði og sækja sér innblástur. Frá Noregi kom Tormod Amundsen sem er stofnandi Biotope arkitektastofunnar og áttu Dagný og hann gott spjall.

DLD hlýtur evrópsku verðlaunin: Distributed Design Awards

On 21, Aug 2018 | No Comments | In Fréttir, Umfjöllun | By Dagný

DLD hlaut fyrir Íslands hönd evrópsku Distributed Design Awards þann 18. ágúst 2018 fyrir hönnun Fang bekkjana.  Hugmyndfræðin um deilda hönnun (distributed design), gengur út á að framleiða vörurnar lókal í hverju landi á forsendum hönnuðarins og spara þannig vöruflutninga heimshornanna á milli. Samræmist sú hugmyndafræði fullkomlega framleiðslu Fang bekkjanna. Nýsköpunarmiðstöð fóstrar verkefnið en það er samstarf margra aðila undir hatti Creative Europe Programme.

Hér er linkur með nánari upplýsingum um hugmyndafræðina á bak við Dreifða hönnun – Distributed Design Awards, verðlaunin.

Samkeppni um Hlemmsvæði

On 05, May 2018 | No Comments | In Fréttir, Umfjöllun | By Dagný

Reykjavíkurborg efndi til hugmyndaleitar hjá þremur teiknistofum um skipulag Hlemmsvæðis og útfærslu torgs. Landslag, DLD og Mandaworks öttu kappi um útfærsluna.

Niðurstaðan er sú að DLD og sænska stofan Mandaworks munu leysa torgið í sameiningu. Við hlökkum mikið til samstarfsins og að fá tækifæri til að skapa þetta mikilvæga torg í miðbæ Reykjavíkur. Umsögn dómnendar um tillögu DLD er eftirfarandi: “Tillaga DLD er hlý, nærgætin og umbreytir útliti svæðisins. Hún er sannfærandi og lífleg og styrkir svæðið fyrir viðburði og sem stað til að staldra við eða dvelja á.”

Lesa má meira um niðurstöðurnar hér.