Þjónusta
Fyrirtækið er staðsett í Toppstöðinni í Elliðaárdal – húsi hugvits og verkþekkingar.
DLD veitir fjölbreytta þjónustu á sviði Landslagsarkitektúrs og hönnunar, auk þess sem fyrirtækið hefur unnið að ýmsum þróunarverkefnum og nýsköpun á sviði vöruhönnunar. Verkefnin spanna allt svið fagsins frá skipulagi stórra landsvæði niður í hönnun minnstu úrlausna. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á náið samstarf við verkkaupa í hugmyndavinnu og hönnunarferli verkefnisins. Hér eru nokkrir dæmigerðir verkefnaflokkar sem DLD sinnir.