Óflokkað
13
12
2019
Hlemmtorg kynnt
On 13, 12 2019
DLD og MW kynntu hugmyndir sem stofurnar hafa þróað saman við hönnun Hlemmtorgs. Forhönnunin var kynnt í Umhverfis- og skipulagsráði 4. des og í Borgarráði 5. des. Hér má sjá nokkrar af þeim myndum sem við sýndum á fundinum. Með torginu öðlast Hlemmur aftur þann sess sem hann hafði í fortíð, sem áningastaður og hlið á leið fólks til borgarinnar. Hugmyndin sækir áhrif í sögulegar skýrskotanir mismunandi tímabila, en fyrst og fremst er torgið hannað sem rammi um fjölbreytt mannlíf í nútímasamfélagi. Reynt var að skapa fjölbreytt notagildi sem gæti höfðað til barna og unglinga jafnt sem fullorðinna. Vistvæn nálgun í samgöngum, ofanvatnslausnum og gróðurvæðingu sem einnig skilar betri hljóðvist á svæðinu er burðarás í tillögunni. Torgið er hannað með aðgengi allra í huga og eru landhallar leystir þannig að ekki þurfi sérhæfðar lausnir fyrir fatlaða á torginu eða að inngöngum bygginga.
Það er mikill heiður og ábyrgð að fá að móta svo mikilvægt almenningsrými í borginni og við erum sannfærð um að skjólgott og sólríkt torgið verði nýtt á fjölbreyttan hátt af íbúum og gestum borgarinnar. Efst í huga okkar er þakklæti og tilhlökkun um framtíð svæðisins.
Sjá má fleiri myndir af tillögunni facebook síðu DLD https://www.facebook.com/dagnylanddesign/