Image Image Image Image Image
Scroll to Top

To Top

Fréttir

Krakkar fíla leiksvæði

On 04, Apr 2016 | No Comments | In Fréttir, Fróðleikur, Umfjöllun | By Dagný

DLD tók þátt í sýningunni “Krakkar fíla leiksvæði” á Hönnunar Mars, en Fíla – félags íslenskra landslagsarkitekta stóð fyrir sýningunni sem haldin var á Kjarvalstöðum.

Verk DLD “Komdu út að leika” sýnir nokkur leiksvæði sem Dagný Bjarnadóttir hefur hannað, en auk þess var verkið leikur í sjálfu sér, þar sem áhorfandinn var hvattur til að snúa skífu og setja lítil peð á staði sem við áttu í verkinu.

Við-fangs-efni

On 04, Apr 2016 | No Comments | In Fréttir, Fróðleikur, Umfjöllun | By Dagný

DLD tók þátt í sýningunni Flóð í lækningaminjasafninu á Seltjarnarnesi á Hönnunar Mars, eins og segir í sýningaskrá:
“Efni-viður, viðfangs -efni, verðmæti, hvernig verður illa nýtt efni að verðmæti og eigulegri afurð?
Í verkinu ”við- fangs- efni” er reynt að svara þessari spurningu með dæmum um vörur sem eru unnar úr efnivið sem annars hefði farið forgörðum.
Í verkinu eru kynnt annars vegar bekkirnir Drumbur og Sveifla úr vörulínunni fang útihúsgögn, unnir úr íslenskum skógarvið á verkstæðum Litla Hrauns og hins vegar gegndræpt yfirborðsefni úr muldu drykkjargleri og grjóti.
DLD teiknistofa Dagnýjar Bjarnadóttur landslagsarkitets hefur unnið að verkum sem stuðla að vistvænni nálgun, allt frá skipulagi byggðar til náttúrulegs umhverfis og vöruþróunar”

22

Sep
2015

No Comments

In Fréttir

By Dagný

Falinn skógur – sýning á Djúpavík

On 22, Sep 2015 | No Comments | In Fréttir | By Dagný

Bekkurinn Drumbur úr vörulínunni fang er hluti af sýningunni Falinn skógur á Djúpavík.  Bekkurinn er að þessu sinni úr rekavið en oftast er hann framleiddur út Alaskaösp. Sýningunni lýkur 26. september með sýningastjóraspjalli.  Tímaritið HA fjallaði um sýninguna hér má sjá það.