Image Image Image Image Image
Scroll to Top

To Top

Fréttir

DLD hlýtur evrópsku verðlaunin: Distributed Design Awards

On 21, Aug 2018 | No Comments | In Fréttir, Umfjöllun | By Dagný

DLD hlaut fyrir Íslands hönd evrópsku Distributed Design Awards þann 18. ágúst 2018 fyrir hönnun Fang bekkjana.  Hugmyndfræðin um deilda hönnun (distributed design), gengur út á að framleiða vörurnar lókal í hverju landi á forsendum hönnuðarins og spara þannig vöruflutninga heimshornanna á milli. Samræmist sú hugmyndafræði fullkomlega framleiðslu Fang bekkjanna. Nýsköpunarmiðstöð fóstrar verkefnið en það er samstarf margra aðila undir hatti Creative Europe Programme.

Hér er linkur með nánari upplýsingum um hugmyndafræðina á bak við Dreifða hönnun – Distributed Design Awards, verðlaunin.

Samkeppni um Hlemmsvæði

On 05, May 2018 | No Comments | In Fréttir, Umfjöllun | By Dagný

Reykjavíkurborg efndi til hugmyndaleitar hjá þremur teiknistofum um skipulag Hlemmsvæðis og útfærslu torgs. Landslag, DLD og Mandaworks öttu kappi um útfærsluna.

Niðurstaðan er sú að DLD og sænska stofan Mandaworks munu leysa torgið í sameiningu. Við hlökkum mikið til samstarfsins og að fá tækifæri til að skapa þetta mikilvæga torg í miðbæ Reykjavíkur. Umsögn dómnendar um tillögu DLD er eftirfarandi: “Tillaga DLD er hlý, nærgætin og umbreytir útliti svæðisins. Hún er sannfærandi og lífleg og styrkir svæðið fyrir viðburði og sem stað til að staldra við eða dvelja á.”

Lesa má meira um niðurstöðurnar hér.

1. verðlaun í samkeppni um nýja stúdentagarða við Gamla Garð

On 04, Apr 2017 | No Comments | In Fréttir, Fróðleikur, Umfjöllun | By Dagný

DLD ásamt Ydda arkitetktum unnu fyrstu verðlaun í samkeppni um skipulag og hönnun bygginga á nýjum stúdentagörðum við Hringbraut. Í umsögn dómnefndar segir m.a ” Hönnun húsanna fellur vel að hugmyndum verkkaupa um samfélag stúdenta. Fyrirkomulag lóðar er skemmtilegt og býður upp á opið samfélag íbúa og annarra gesta háskólasvæðisins. Íbúar Gamla Garðs fá með tillögunni útisvæði til afnota sem er vel þegið. Þá fær hann skjól frá nýbyggingu við Hringbraut en skapar skemmtilega opnuninn inn á háskólasvæðið í átt að Skeifu og Sæmundargötu. Grunnmynd er vel leyst og tengingar við inngarð með ágætum. Stigaturn Gamla Garðs nýtur sín vel og kvarði bygginga er almennt góður” nánar um dómnefndarálit  má finna hér.