Verk
On 11, Jan 2017
Viðey, leik- og dvalarsvæði
DLD hannaði útfærslu á dvalar- og leiksvæði í Viðey, sem getur tekið á móti skólahópum og öðrum gestum. Lítið torgsvæði tekur á móti gangandi umferð þegar komið er norðurfyrir Viðeyjarstofu og þar má átta sig á gönguleiðum og fleiru fróðlegu um eyjuna. Í tillögunni er mótað óformlegt leiklandslag með leiktækjum í anda staðarins, setstallar eru formaðir fyrir útikennslu ásamt grill og nestisaðstöðu í gamla fjósgrunninum. Núverandi smáhýsi er nýtt fyrir inniaðstöðu og á torgsvæði við húsið er hægt að snæða nesti. Á þaki jarðgeymslu er óformlegt svið og núverandi úti salerni nýtast jafnframt svæðinu.
On 20, Jun 2016
Spot on Kársnes – 1. verðlaun í “Nordic Built City Challenge” um skipulag Kársnes
Spot on Kársnes hlaut 1.verðlaun í “Nordic Built Cities Challenge” keppninni um skipulag Kársness. Hér má sjá umsögn um tillöguna
Höfundar tillögu eru DLD -Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt, Anders Egebjerg Terp landslagsarkitekt og Gunnlaugur Johnnson arkitekt. Auk þeirra voru í teyminu Elisa Sarasso landslagsarkitekt frá Ítalíu starfnemi hjá DLD, Anna Margrét Sigruðardóttir BA nemi frá Lbhí, Kristján Jón Pálsson grafískur hönnuður (vídeóvinnsla), og vídeóinu ljáði rödd sína Neil McMahon. Apríl Arkitekter voru ráðgjafar og komu með uppbyggilega gagnrýni á seinna stigi keppninnar.
















