Verk
No Comments
By Dagný
On 11, Jan 2017 | No Comments | In | By Dagný
Viðey, leik- og dvalarsvæði
DLD hannaði útfærslu á dvalar- og leiksvæði í Viðey, sem getur tekið á móti skólahópum og öðrum gestum. Lítið torgsvæði tekur á móti gangandi umferð þegar komið er norðurfyrir Viðeyjarstofu og þar má átta sig á gönguleiðum og fleiru fróðlegu um eyjuna. Í tillögunni er mótað óformlegt leiklandslag með leiktækjum í anda staðarins, setstallar eru formaðir fyrir útikennslu ásamt grill og nestisaðstöðu í gamla fjósgrunninum. Núverandi smáhýsi er nýtt fyrir inniaðstöðu og á torgsvæði við húsið er hægt að snæða nesti. Á þaki jarðgeymslu er óformlegt svið og núverandi úti salerni nýtast jafnframt svæðinu.