Umfjöllun
1. verðlaun í samkeppni um nýja stúdentagarða við Gamla Garð
On 04, Apr 2017 | No Comments | In Fréttir, Fróðleikur, Umfjöllun | By Dagný
DLD ásamt Ydda arkitetktum unnu fyrstu verðlaun í samkeppni um skipulag og hönnun bygginga á nýjum stúdentagörðum við Hringbraut. Í umsögn dómnefndar segir m.a ” Hönnun húsanna fellur vel að hugmyndum verkkaupa um samfélag stúdenta. Fyrirkomulag lóðar er skemmtilegt og býður upp á opið samfélag íbúa og annarra gesta háskólasvæðisins. Íbúar Gamla Garðs fá með tillögunni útisvæði til afnota sem er vel þegið. Þá fær hann skjól frá nýbyggingu við Hringbraut en skapar skemmtilega opnuninn inn á háskólasvæðið í átt að Skeifu og Sæmundargötu. Grunnmynd er vel leyst og tengingar við inngarð með ágætum. Stigaturn Gamla Garðs nýtur sín vel og kvarði bygginga er almennt góður” nánar um dómnefndarálit má finna hér.
Krakkar fíla leiksvæði
On 04, Apr 2016 | No Comments | In Fréttir, Fróðleikur, Umfjöllun | By Dagný
DLD tók þátt í sýningunni “Krakkar fíla leiksvæði” á Hönnunar Mars, en Fíla – félags íslenskra landslagsarkitekta stóð fyrir sýningunni sem haldin var á Kjarvalstöðum.
Verk DLD “Komdu út að leika” sýnir nokkur leiksvæði sem Dagný Bjarnadóttir hefur hannað, en auk þess var verkið leikur í sjálfu sér, þar sem áhorfandinn var hvattur til að snúa skífu og setja lítil peð á staði sem við áttu í verkinu.








