Image Image Image Image Image
Scroll to Top

To Top

Fróðleikur

Við-fangs-efni

On 04, Apr 2016 | No Comments | In Fréttir, Fróðleikur, Umfjöllun | By Dagný

DLD tók þátt í sýningunni Flóð í lækningaminjasafninu á Seltjarnarnesi á Hönnunar Mars, eins og segir í sýningaskrá:
“Efni-viður, viðfangs -efni, verðmæti, hvernig verður illa nýtt efni að verðmæti og eigulegri afurð?
Í verkinu ”við- fangs- efni” er reynt að svara þessari spurningu með dæmum um vörur sem eru unnar úr efnivið sem annars hefði farið forgörðum.
Í verkinu eru kynnt annars vegar bekkirnir Drumbur og Sveifla úr vörulínunni fang útihúsgögn, unnir úr íslenskum skógarvið á verkstæðum Litla Hrauns og hins vegar gegndræpt yfirborðsefni úr muldu drykkjargleri og grjóti.
DLD teiknistofa Dagnýjar Bjarnadóttur landslagsarkitets hefur unnið að verkum sem stuðla að vistvænni nálgun, allt frá skipulagi byggðar til náttúrulegs umhverfis og vöruþróunar”

Fyrirlestur í Hafnarhúsinu

On 13, Mar 2014 | No Comments | In Fróðleikur | By Dagný

Úrgangur“ er vaxandi vandamál, áhugi á vistvænum lausnum og enduvinnslu eykst með ári hverju, sú staðreynd að hráefnisskortur mun aukast á komandi árum leiðir hugann að því að nýta betur hráefni sem við köllum úrgang.

Í fyrirlestrinum mun Dagný Bjarnadóttir kynna verkefni sem byggja á endurnýtingu hráefnis sem áður hefur verið sett til hliðar sem úrgangur.   Fyrilesturinn verður út frá myndefni af raunverulegum verkum og ferlinu sjálfu frá hugmyndafræði, hönnun og úrvinnslu.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröð Hönnunarmiðstöðvar í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands.

Read more…