Fréttir
Við-fangs-efni
On 04, Apr 2016 | No Comments | In Fréttir, Fróðleikur, Umfjöllun | By Dagný
DLD tók þátt í sýningunni Flóð í lækningaminjasafninu á Seltjarnarnesi á Hönnunar Mars, eins og segir í sýningaskrá:
“Efni-viður, viðfangs -efni, verðmæti, hvernig verður illa nýtt efni að verðmæti og eigulegri afurð?
Í verkinu ”við- fangs- efni” er reynt að svara þessari spurningu með dæmum um vörur sem eru unnar úr efnivið sem annars hefði farið forgörðum.
Í verkinu eru kynnt annars vegar bekkirnir Drumbur og Sveifla úr vörulínunni fang útihúsgögn, unnir úr íslenskum skógarvið á verkstæðum Litla Hrauns og hins vegar gegndræpt yfirborðsefni úr muldu drykkjargleri og grjóti.
DLD teiknistofa Dagnýjar Bjarnadóttur landslagsarkitets hefur unnið að verkum sem stuðla að vistvænni nálgun, allt frá skipulagi byggðar til náttúrulegs umhverfis og vöruþróunar”
Falinn skógur – sýning á Djúpavík
On 22, Sep 2015 | No Comments | In Fréttir | By Dagný
Bekkurinn Drumbur úr vörulínunni fang er hluti af sýningunni Falinn skógur á Djúpavík. Bekkurinn er að þessu sinni úr rekavið en oftast er hann framleiddur út Alaskaösp. Sýningunni lýkur 26. september með sýningastjóraspjalli. Tímaritið HA fjallaði um sýninguna hér má sjá það.








