Image Image Image Image Image
Scroll to Top

To Top

Verk

On 02, Oct 2014 | No Comments | In | By Dagný

Einkalóðir

Einkalóðir sem Dagný hefur hannað hafa margar hverjar hlotið viðurkenningu, en draumagarðurinn byggir ávallt á þörfum og óskum notandans.  DLD leggur mikið upp úr fagmennsku er kemur að hæðarsetningu, aðlögun og mótun lands, þannig má leika sér með þriðju víddina og skapa ný og spennandi rými.

On 18, Feb 2012 | No Comments | In | By Dagný

Þúfnahopp

Þúfnahopp var valin til útfærslu í smágarðasamkeppni sem Fíla – Félag íslenskra Landslagsarkitekta hélt í samstarfi við Hveragerðisbæ af tilefni Blómadaga árið 2009.
Verkið er útfærsla á barnaleiknum að hoppa á milli þúfna, sem höfundurinn Dagný Bjarnadóttir stundaði í æsku á grámosaþúfunum við Kerið í Grímsnesi.

Höfundurinn vann verkið að hluta til í Steypustöðinni sem styrkti verkið, Hörður í Garðvélum ehf lagði gúmmí og gerfigras, en Alta og Metatron gáfu efnið.

 

 

Sundlaug á Hellu

Sundlaug á Hellu er verkefni þar sem sundlaugarsvæðið var stækkað og endurbætt.  Ný vaðlaug og rennibraut var komið fyrir og sundlaugargarðurinn endurhannaður í heild sinni.  Sagan segir að tröllabarn hafi stigið niður á laugarsvæðið og mótað vaðlaugina, það hljóp að heiman af því að því var strítt svo mikið á því að hafa bara fjórar tær…..
Laugin er hönnuð með í huga að notalegt sé fyrir fullorðna að liggja í henni og fyrir smáfólkið að sulla og svamla.  Tartan yfirborð gerir svæðið hálkufrítt og mjúkt undir fæti.

Hönnun: Dagný Bjarnadóttir
á starfstímabili hjá Landslagi ehf

Arkitekt húss: Guðjón Magnússon

Verkkaupi: Rangárþing ytra

Framkvæmdaár: