Verk
On 22, Sep 2015 | No Comments | In Þróunarverkefni, sýningar og innsetningar | By Dagný
Aldingarður æskunnar- Steinahlíð
í Júní árið 2014 var hleypt af stokkunum verkefninu ,,Aldingarður æskunnar” í leikskólanum Steinahlíð í Reykjavík. Þessi fyrsti ,,Aldingarður æskunnar” er samstarfsverkefni Barnavinafélagsins Sumargjafar og Garðyrkjufélags Íslands. DLD teiknaði tillögu að því hvernig reitnum yrði komið fyrir og valdi tegundir í samráði við Garðyrkjufélagið.
Garðyrkjufélag Íslands leitaði til Barnavinafélagsins Sumargjafar um samstarf við að hrinda af stað verkefninu ,,Aldingarður æskunnar” en það heiti yrði notað um slíka garða um land allt. Í ,,Aldingörðum æskunnar” yrðu ræktuð aldintré, eins og t.d. eplatré og kirsi, en jafnframt yrði lögð áhersla á nýjar og gamlar tegundir berjarunna.

















